Nýjar fjármögnunarleiðir jarðganga á Vestfjörðum vel færar

April 11, 2024

Í krafti nýlegra laga um samvinnuverkefni mætti klára þá innviði sem sárvantar á Vestfjörðum með samstarfi ríkis, sveitarfélaga, stórra fjármögnunaraðila og kraftmikils atvinnulífs í fjórðungnum. Með vilja löggjafans og stofnanafjárfesta mætti klára Súðavíkurgöng, tengja saman byggðakjarna á sunnanverðum Vestfjörðum og koma samgöngum til og frá Vestfjörðum í eðlilegt horf.

Þetta kemur fram í skýrslu Reykjavík Economics um efnahagslegt framlag Vestfjarða til þjóðarbúskapsins. Þar er rakið að Alþingi hafi nýlega samþykkt lög um samvinnuverkefni sem stuðli að samstarfi hins opinberra og einkaaðila um uppbyggingu stórra innviða.

Í slíku fyrirkomulagi getur svokallaður sérleyfissamingur kveðið á um tvennt. Annars vegar að einkaðili komi að uppbyggingu mannvirkis sem er nýtt beint af ríki eða sveitarfélagi sem greiðir afgjald fyrir. Hins vegar að sérleyfi sé úthlutað til uppbyggingar þar sem vara eða þjónusta er seld beint til almennings. Einkaðilinn fengi annars vegar rekstrartekjur frá notendum og hins vegar, í sumum tilfellum, beint framlag eða styrk frá hinu opinbera til að endurgreiða fjárfestinguna.

Samkvæmt drögum að samgönguáæltun fyrir 2024 – 2038 eru Súðavíkurgöng þau fimmtu í röðinni í jarðgangaáætlun og enn lengra er í göng undir Hálfdán, Mikladal og Kleifaheiði. Þannig má ætla að áratugir líði áður en byrjað verður á framkvæmdunum. Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þessara framkvæmda. Súðavíkurhlíðinni er lokað ítrekað lokað vegna snjóflóða og grjóthruns og heiðarnar sem tengja saman sunnanverða Vestfirði eru oft ófærar og hættulegar vegna óveðurs.

“Biðlund Vestfirðinga eftir eðlilegum og sanngjörnum samgöngubótum í fjórðungnum er þrotin og sú mikla atvinnuuppbygging sem hefur orðið á svæðinu öskrar á ný vinnubrögð,” segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, sem hefur barist fyrir hraðari innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. “Það er ekkert því til fyrirstöðu að aðilar á svæðinu og ríkið taki höndum saman og ráðist í þessar brýnu framkvæmdir í gegnum samvinnuverkefnaformið. Eða leiti út fyrir landssteinanna eftir fjármögnum, sem er vel mögulegt í tilviki Vestfjarða. Þar getum við horft til Norræna fjárfestingabankans og Evrópska þróunar- og endurreisnarbankans, sem hafa fjármagnað verkefni af þessum toga annar staðar. Ég skora á stjórnvöld að hugsa í lausnum og ráðast tafarlaust í þetta verkefni, til hagsbóta fyrir alla þjóðina,“ segir Guðmundur Fertram.

Dæmin sýna að samvinnuverkefni geta hraðað framkvæmdum og stuðlað að efnhagslegum framförum ákveðnum svæðum. Hvalfjarðargöng eru dæmi um slíkt, en þar réðust framsýnir frumkvöðlar í tímabæra framkvæmd sem hefur skapað mikil þjóðhagsleg verðmæti, m.a. með styttingu hringvegarins. Þá breyttu göngin miklu fyrir Akranes, sem nú er blómlegt bæjarfélag og hluti af miklu stærra atvinnusvæði en áður.

Að sama skapi munu betri samgöngur milli byggðakjarna á Vestfjörðum gera fjórðunginn að einu atvinnusvæði, með aukinni uppbyggingu og fólksfjölgun.

Aðrar fréttir