Lengdarmetrinn í Fossvogs-brúnni 35 sinnum dýrari

April 11, 2024

Kostnaður við 270 metra langa Fossvogsbrú er áætlaður 8,8 milljarðar, eða 32,5 milljónir á lengdarmetrann. Til samanburðar kostaði lengdarmetrinn í Dýrafjarðargöngunum 2,2 milljónir króna árið 2021, en þau styttu Vestfjarðarveg um rúma 27 kílómetra, auk þess að sneitt var hjá hættulegum vetrarvegi yfir Hrafnseyrarheiði sem er að jafnaði ófær að vetrarlagi og án vetrarþjónustu. Lengdarmetrinn í Fossvogsbrúnni verður sem sagt fimmtán sinnum dýrari en lengdarmetrinn í göngunum.

Raunar gefur meðfylgjandi mynd að einhverju leyti skakka mynd af veruleikanum, því samhliða gangnagerðinni sjálfri var lagður tæplega 9 kílómetra vegur sitt hvoru megin ganganna.

Heildarkostnaður við framkvæmdina deilist því í raun á 14,3 kílómetra og þá er lengdarmetrinn kominn niður í 940 þúsund krónur. Metrinn í Fossvogsbrúnni er þá orðinn 35 sinnum dýrari en sá við vegabæturnar í Dýrafirði.

Að jafnaði eru göng dýrari valkostur en brýr.

Aðrar fréttir