
Starfsemi Kerecis, ferðaþjónusta auk uppbyggingar fiskeldis á Vestfjörðum á síðustu árum hefur eflt atvinnu á svæðinu og þar með glætt von íbúa um áframhaldandi uppbyggingu. Það endurspeglast m.a. í hærra fasteignaverði á Ísafirði sem hefur hækkað mun meira en í Reykjavík frá árinu 2007 til 2023 eða um 247,5% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði meðalverð íbúðarhúsnæðis í Reykjavík um 167%.
Þrátt fyrir hækkunina er íbúðaverð í Ísafjarðarbæ lágt í samanburði við höfuðborgarsvæðið og Akureyri. Hingað til hefur verðið verið nokkuð undir byggingarkostnaði, en hækkandi verð er líklegt til að stuðla að auknum íbúðaframkvæmdum.
Árið 2023 var meðalfermetraverð í fjölbýli á Ísafirði var um 396 þúsund krónur á fermetra en um 330 þúsund í sérbýli. Meðalkaupverð hefur hækkað um rúm 90% að raungildi frá 2016 til 2023 en meðalkaupverð íbúðarhúsnæðis var 37,2 milljónir króna í lok fjórða ársfjórðungs 2023.
Undir lok síðustu aldar dró verulega úr smíði nýs húsnæðis í Ísafjarðarbæ og hefur lítið verið byggt þar frá seinustu aldamótum. Frá 2016 til ársbyrjunar 2024 hefur íbúðum fjölgað um 171 skv. upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Þar af fjölgaði íbúðum á Ísafirði og Bolungarvík um 104 talsins á tímabilinu. Töluverð uppbygging var á árinu 2023 á Ísafirði og Bolungarvík.
