
Uppgangur í atvinnulífinu hefur stækkar skattspor Vestfjarða. Samkvæmt greiningu Reykjavík Economics skilaði atvinnulífið á Vestfjörðum 38,7 milljörðum króna í sameiginlega sjóði á árunum 2019 til 2022. Með fyrirsjáanlegum vexti lykilfyrirtækja stækkar skattspor Vestfjarða og verður um 62 milljarðar á tímabilinu 2023 til 2027. Atvinnulífið á Vestfjörðum mun því alls skila rúmlega 100 milljarða skattgreiðslum á tímabilinu sem greiningin nær til. Það er ekki lítið, fyrir fámennasta landshlutann þar sem 2% þjóðarinnar búa.

Á síðustu 15 árum hefur fjöldi fyrirtækja á Vestfjörðum tvöfaldast. Tekjurnar hafa vaxið um 77% á föstu verðlagi og með bættri afkomu fyrirtækja hafa aukin umsvif skilað auknum tekjum í ríkis- og sveitarsjóði. Skattspor tekur aðeins til fyrirtækja á svæðinu en hvorki starfsemi ríkis né sveitarfélaga.
Við útreikning skattspors fram í tímann þarf að gefa sér forsendur um fjölda launþega í viðskiptahagkerfinu ásamt forsendum um greiddan tekjuskatt, meðallaun og mótframlag í lífeyrissjóð ásamt greiddu tryggingagjaldi. Í greiningu Reykjavík Economics er gert ráð fyrir þremur ólíkum sviðsmyndum.
Sviðsmynd 1: Að fiskeldisfyrirtæki fullnýti lífmassaheimildir sínar árið 2027, ferðaþjónusta hafi sótt í sig veðrið á Vestfjörðum og vöxtur í framleiðslu verði töluverður, m.a. hjá Kerecis.
Sviðsmynd 2: Að fiskeldi aukist en fyrirtæki fullnýti þó ekki lífmassaheimildir sínar, ferðaþjónusta vaxi hægar en iðnaður án fiskvinnslu vaxi eins og í sviðsmynd 1.
Sviðsmynd 3: Að fiskeldi lendi í mótbyr og ekki verði af frekari framleiðsluaukningu, að vöxtur ferðaþjónustu á Vestfjörðum stöðvist en iðnaður án fiskvinnslu vaxi áfram.
Í öllum tilvikum verður skattspor atvinnulífs á Vestfjörðum stórt, eða frá 56 milljörðum til 62,2 milljarða króna. Matið er í alla staða raunhæft og raunar gætu markaðsaðstæður stækkað skattsporið – t.d. ef heimsmarkaðsverð á eldislaxi hækkar, sem myndi leiða til bættrar afkomu fiskeldisfyrirtækja.
Smelltu hér til að skoða greiningu Reykjavík Economics.