479 milljónir í hafnarsjóð

April 11, 2024

Aukin umferð skemmtiferðaskipa hefur ekki farið framhjá Vestfirðingum. Farþegar skipanna hafa keypt margvíslega þjónustu og þannig aukið umsvifin í vestfirska hagkerfinu. Beinar tekjur hafnarinnar af komum skipanna hafa stóraaukist og samkvæmt upplýsingum frá hafnarstjóra Ísafjarðarbæjar er áætlað að þær verði 479 milljónir króna á árinu 2024.

Alls komu 187 skemmtiferðaskip til Ísafjarðar sumarið 2023, með 184 þúsund farþega. Til samanburðar voru skipin 105 á árinu 2018 og farþegarnir um 73 þúsund talsins. Komum skemmtiferðaskipa til hafna Ísafjarðarbæjar hefur því fjölgað um 78% frá árinu 2018 til ársins 2023 og farþegum fjölgað um 152%.

Ljóst er að ferðaþjónusta er vaxandi atvinnuvegur á Vestfjörðum og skapar fjölda starfa á því sviði, auk tekna fyrir bæjarsjóð. Haldi atvinnuvegurinn áfram að vaxa og dafna eru líkur á að eftirspurn eftir vinnuafli aukist.

Aðrar fréttir