
Þótt flatarmál Færeyja sé aðeins um 1/6 af stærð Vestfjarða er jarðgangakerfið margfalt stærra þar. Á þriðja tug ganga tengja saman byggðir í Færeyjum, á meðan þrenn göng eru á Vestfjörðum. Sex ný göng eru í smíðum í Færeyjum en engin á Vestfjörðum. Myndin sýnir glögglega sláandi samanburðinn, en á henni eru eingöngu göng sem þegar eru til staðar í báðum löndum.
Stórhugur Færeyinga og áherslan á samgöngubætur er sannarlega til eftirbreytni. Hún endurspeglar þann skilning að skilvirkar samgöngur eru lykilatriði í þróun og velferð smárra samfélaga og reynsla Færeyinga er afar góð. Þeir hafa fjárfest skynsamlega og m.a. fjármagnað framkvæmdir með samstarfi ríkis, sveitarfélaga og notenda.
